Heim
Fréttir
Reykjavík Shorts&Docs
Senda inn mynd
Dagskrá
Sérstök dagskrá
Silfur refurinn
Sjálfboðaliðar
Hafa samband
 
News
Reykjavík Short&Docs
Submit A Film
Program
Special Events
The Silver Fox
Volunteer
Contact Us
 
 
 
 
 
 
  FrÉttir  
 


Takið eftir! Vegna fjölda áskoranna verður hátíðin framlengd um tvo daga. Shorts&Docs lýkur því ekki fyrr en á sunnudaginn 31. ágúst. Framlengd dagskrá er sem hér segir:

Laugardagur 30 ágúst:
Kl. 15:00
Pétur og úlfurinn
Leikstjóri: Suzie Templeton
Tónlist eftir Prokofiev
Bretland 2007/32 mín
Óskarsverðlaunamynd í flokki stuttra teiknimynda 2008

Pétur er munaðarlaus en ævintýragjarn ungur piltur sem býr með ströngum afa sínum í útjaðri stórs skógar í Rússlandi. Hár veggur umlykur býlið en Pétur er viss um að handan við vegginn bíða hans mörg ævintýri, en Pétur hefur aldrei fengið að komast að því í raun. Dag nokkurn tekur hann málin í eigin hendur.

Kl. 17:00
Sagan um Svein Kristján Bjarnarson - öðru nafni Holger Cahill/
Leikstjóri: Hans Kristján Árnason
Ísland 2008/52 mínútur
Sagan um Holger Cahill – eða Svein Kristján Bjarnarson, sem fór úr torfbæ á forsíðu TIME; leyndarmálið um Íslendinginn sem gerði New York að höfuðborg myndlistarheimsins. Hann var m.a. forstjóri MoMA (Museum of Modern Art í New York), yfirmaður allra myndlistarmála hjá F.D. Roosevelt forseta, rithöfundur, helsti sérfræðingur Bandaríkjanna í alþýðulist. Saga þessa hæfileikaríka og
dulafulla manns hefur ekki fyrr verið sögð né sýnd opinberlega hér á landi. (Verk í vinnslu).

Kjötborg
Leikstjóri: Helga Rakel Rafnsdóttir og Hulda Rós Guðnadóttir
Ísland 2008/44 mín.
Heimildarmynd um hornverslunina Kjötborg og bræðurna Gunnar og Kristján sem reka hana. Myndin er full af húmor og viðkvæmni, gáska og fegurð. Myndin hefur hvarvetna hlotið góða dóma og sýnum við hana á RS&D vegna fjölda áskorana.

KL. 19:00
FREEHELD
Óskarsverðlaun/Besta stutta heimildamyndin
Leikstjóri: Cynthia Wade
Bandaríkin 2007 38 mín.

"Staggering & unforgettable." Cynthia Nixon

"Fortunately, in Laurel's tragedy lies the foundation for change." Anne Thompson, Variety

Í tuttugu og fimm ár verndaði rannsóknarlögregluforinginn Laurel. Hester samborgara sína í Ocean County í New Jersey, þangað til haustið 2004 þegar hún greindist með lungnakrabbamein á lokastigi. Barátta foringjans fyrir lífi sínu öðlaðist fljótt alþjóðlega frægð þegar hún fór fram á að lífsförunautur hennar, Stacie Andree, fengi lífeyrinn eftir hennar dag. En án hans myndi Stacie, sem starfar sem
bifvélavirki, ekki halda húsi þeirra. Hefðu þær verið gagn-kynhneigð hjón hefðu lífeyrisréttindi annars makans færst sjálfkrafa yfir á hinn. Þegar Laurel á minna en sex mánuði eftir ólifaða gefst hún ekki upp þótt kjörnir embættismenn The Ocean County Freeholders neita henni um að ánafna Stacey lífeyrinn. Um leið og barátta hennar við lífeyris-sjóðinn harðnar og stuðningsmönnum hennar fjölgar berst hún af hugrekki við tímann til þess að ala önn fyrir ástinni sinni. Fjölmennir mótmælafundir og hljóðlátar hversdags-stundir á heimili Laurelar og Staciar segja baráttusögu einstaklingsins við kerfið og ástarsögu tveggja sem horfast í augu við dauðann.

Og:
Að deyja í Jerúsalem/To Die in Jerusalem
Leikstjóri: Hilla Medalia
Ísrael 2007/76 mín.
Heimildamynd

Tvær dætur láta lífið í átökum: önnur lifandi sjálfsmorðs-sprengja, hin fórnarlamb hennar. Tvær mæður leita svara. Tvær þjóðir aðskildar í landi sem þær lifa í saman. Í myndinni er leitast við að skoða hernaðarátök Palestínu og Ísraels útfrá sjónarhóli mæðranna sem misstu dætur sínar í þessu voðaverki. Mögnuð heimildarmynd sem farið hefur sigurför um heiminn.

SUNNUDAGUR 31 ágúst 2008:

Kl. 15:00
Silfurrefurinn afhentur: Verðlaunaafhending fyrir bestu íslensku stuttmyndina og bestu íslensku heimildamyndina.

Kl. 17:00
Los Angeles Plays Itself
Leikstjóri Thom Andersen
USA (2003) 169 mín.

Óður til kvikmyndalistar og byggingarlistar í kvikmyndaborginni rómuðu, en engin mynd hefur áður gert kvikmyndasögu Los Angeles jafn frumleg og skemmtileg skil. Kvikmyndaáhugamenn sérstaklega hvattir til þess að mæta.

Kl. 21:00
Úrval Skoskra stuttra heimildamynda undir heitinu Bilið brúað, eða Bridging the gap.

Standing Start
Leikstjóri: Adrian McDowall og Finlay Pretsell
Skotland 2007/12 mín.
Ævi- og baráttusaga Ódysseifs er borin saman við undirbúning reiðhjólakappa fyrir keppni. Mynd um heimsmeistarann Craig MacLean.

Breadmakers
Leikstjóri/Director: Yasmin Fedda
Skotland, Bretland 2007/10 mín.

Í bakaríi í Edinborg bakar verkafólk með námsörðugleika brauð og tjáir sig með ólíkum aðferðum, til dæmis með táknmáli. Myndin sýnir áhorfendum hin margbrotnu samskipti sem ríkja innan hópsins.

How To Save a Fish from Drowning
Leikstjóri: Kelly Neal
Skotland, Bretland, 2007/13 mín.

Endalok hinnar „hvítu" amerísku sveitar er hér sögð af þremur körlum sem veiða á ísilögðu vatni. Í snæviþakið og autt landslagið flýja þremenningarnir konur sínar og heimabæ og spjalla um nágrannana ámeðan þeir bíða.

Butterfly
Leikstjóri/Director: Yulia Mahr
Skotland, Bretland, 2007/12 mín.

Þessi sérstaka mynd skoðar afstöðu ungrar konu sem er albínói og hefur upplifað sig sem útlaga í samfélaginu en er staðráðin í því að lifa venjulegu lífi. „Ég mun aldrei keyra bíl en ekki miklu lengra ná takmörk mín”, segir hún um leið og hún klifrar hæstu innanhússtinda Evrópu.

The Unbearable Whiteness of Being
Leikstjóri: Faisal Azis
Skotland, Bretland 2007/10 mín.
Um heimsbyggð alla beitir fólk ýmsum brögðum til að lýsa húðlit; ástæðurnar eru margar og ólíkar. Þessi heimilda-mynd segir frá metnaðarfullu fyrirtæki sem helgar sig því
að lýsa húðlit í von um stórgróða.

My Mother's Daughter
Leikstjóri: Saleyha Ahsan
Skotland, Bretland, 2007/12 mín.

Saga heitkristinnar móður, Joyce, af dóttur sinni, tekur óvænta stefnu þegar dóttirin, og blaðakonan, Yvonne Ridley, sem hafði verið í haldi Talibana í Afghanistan, snýst til múhameðstrúar.

Ottica Zero
Leikstjóri: Maja Borg
Framleiðandi: Jason Hall
Skotland, Bretland, 2007/13 mín.
Heimildarmynd/Documentary

Stuttu eftir að hin ítalska leikkona Nadya Cazan sló í gegn hvarf hún. Myndin fylgir leikkonunni eftir í leit að annars konar lífstíl eftir að hún hafnar því samfélagi sem byggist á peningahyggju. Frá Rómarborg teygir ferðalagið sig til Venusar á Flórida, heimabæjar fútúristans Jacques Fresco, sem þar kynnir hugmyndir sínar og lausnir sem eiga að
bjarga heiminum.

Miðasala er í gamla Austurbæjarbíó frá kl 14.30 hvern
dag vikunnar. Miðaverðið er 600 kr.
Aðgöngupassi á allar myndir hátíðarinar er 4000 kr.
3000 fyrir nemendur.


Dagskráin Fimmtudag 27. 08 hefst kl. 15:00 með sýningu
á Pétri og úlfinum.

FIMMTUDAGUR 28.08.08
KL. 15:00
Pétur og úlfurinn
Leikstjóri/Director: Suzie Templeton
Tónlist eftir Prokofiev
Bretland 2007/32 mín
Óskarsverðlaunamynd í flokki stuttra teiknimynda 2008

KL. 15:40
Óður til Íslands
Island 63° 66°
140 mín.

KL. 17:30
To Die in Jerusalem
76 mín.

KL. 19:00
Monastery
The Time is Now
113 mín.

KL. 21:00
USA vs Al-Arian
90 mín.

KL. 23:00
Empire of Evil
90 mín.


Kvikmyndir á dagskrái eru 59 og eru sem hér segir:

Um eitt hundrað myndir bárust Reykjavik Short&Docs þetta
árið, sem margar hverjar verða frumsýndar á hátíðinni.
Mikil gróska virðist vera að færast í Íslenska stuttmyndagerð og spennandi að opna hátíðina á nýjum og metnaðarfullum verkum.
Dagskráin verður birt innan skamms.


Reykjavík Shorts&Docs er það sönn ánægja að kynna heiðursgest hátíðarinnar í ár, Thom Andersen (f. 1943 í Chicago). Thom býr í Los Angeles, þar sem hann starfar sem kvikmyndagerðarmaður, kvikmyndagagnrýnandi og prófessor
við kvikmyndadeild hins virta listaháskóla California Institute
Of The Arts.

Heimildarmyndir Thom Andersen eru afar mikils metnar í kvikmyndageiranum. Þar má meðal annars geta heimildarmynd- arinnar Eadweard Muybridge, Zoopraxographer (1974), um samnefndan ljósmyndara sem er álitinn vera einn helsti braut- ryðjandi á sviði kvikmyndagerðarlistarinnar, Red Hollywood (1996) þar sem Andersen fjallar um áhrif McCarthyismans á kvikmynda- gerð í Hollywood á fimmta og sjötta áratug síðustu aldar, og síðast en ekki síst hina stórfenglegu Los Angeles Plays Itself (2003). Myndin, sem fer enn sigurför um heiminn, er óður til kvikmynda- listar og byggingarlistar í kvikmyndaborginni rómuðu, en engin mynd hefur áður gert kvikmyndasögu Los Angeles jafn góð og skemmtileg skil.

Með sérhverri mynd hefur Thom endurskrifað kvikmyndasöguna á einstaklega ítarlegan og fróðlegan hátt. Það er mikill fengur fyrir hátíðina og Íslendinga að fá Thom hingað til lands og ætti enginn sannur áhugamaður um kvikmyndir og kvikmyndasögu að láta þessar myndir fram hjá sér fara.

Í kjölfar sýninga á myndum Thoms verður efnt til pallborðsum- ræðna í gamla Austurbæjarbíói sem auglýstar verða síðar.

Umsagnir um Los Angeles Plays Itself:

"Los Angeles may be the most photographed city in the world, but it has never been captured with such complex layers of meaning and
fascination as in Thom Andersen's remarkable LOS ANGELES PLAYS ITSELF. This analysis of how the mega-burg is used and abused by the Hollywood fantasy machine, as well as his loving embrace of
the city's nature and history, will become essential viewing for Angelenos and movie lovers worldwide and a must booking for cinematheques and specialty houses." -- Variety

"A terrific cinematic essay!" -- The Hollywood Reporter

"The best piece of film criticism I've encountered lately isn't a book, newspaper, or magazine article. It's "Los Angeles Plays Itself,"Thom Andersen's 169-minute documentary about how Los Angeles "the most photographed city in the world," has been depicted in cinema. The kind of masterpiece that expands one's notions of what film can do, its closest peer is Jean-Luc Godard's "Histoire(s)duCinema," a densely poetic and allusive work that's often been compared to James Joyce. Unlike "Histoire(s) du Cinema," it's quite accessible and paced better than the vast majority of action films.
Early on, Andersen's narration -- spoken by fellow filmmaker Encke King -- takes a swipe at the abbreviation of Los Angeles to "L.A.," which he finds implicitly contemptuous. Some may scoff or find this concern petty, but this caveat is crucial to the film's ethos. "Los Angeles Plays Itself" takes the unfashionable stance that cinema should have a direct, accurate relationship to reality. For Andersen, this is both an aesthetic and political position. Against a canon of "official" classics about Los Angeles -- "Chinatown," "Blade Runner," "L.A. Confidential" -- he celebrates films made by European "high tourists" and African-Americans.
"Los Angeles Plays Itself" is powered by a fierce ambivalence, a love/hate relationship with cinema. Its intermingling of cultural and social history is erudite but unpretentious. If many of the best recent documentaries -- "Bus 174," "Capturing the Friedmans," "Control Room" -- show how our reality is contaminated by media, "Los Angeles Plays Itself" tries to grab control back by searching for truth within the image overload. Despite its length, it's 
riveting viewing: lucid, funny, and inspiring. I haven't seen a better new film so far this year.” -- Indie Wire

Tekið var við húsnæðinu á Laugavegi 35 þann 17.07.
Sýningar á heimilda og - stuttmyndum verða í glugganum og verður dagskráin auglýstar síðar.

Innan skamms verður tilkynnt hvaða kvikmyndagerðarmaður verður gestur hátíðarinar.

Reykjavik Shorts&Docs flytur í húsnæði á Laugavegi 35 þann
15. júlí. Í gluggum sem snúa að Laugarveginum verður skipulögð dagskrá sem auglýst verður síðar.

Síðasti dagur til að senda inn mynd er 21. júlí 2008. Sjá nánar í tenglinum senda inn mynd.

     
  Hátíðin fer fram í Austurbæjarbíó. Miðasala hefst kl. 14:30   Magapína   Sagan af Holgeir...
     
  Ketill   Kjötborg   Freeheld
     
  Nágrannar á Shakespear...   Að deyja í Jerúsalem   Eyja
     
  Skrifstofan Laugave   Snjór   Örstutt jól
     
  Hnappurinn   Fullkomin   Gjörgæsla
       
  Konfektkassinn   Hestadans    
           
           
     
  Thom Andersen   SLos Angeles leikur sjálfan sig   SLos Angeles leikur sjálfan sig