Heim
Fréttir
Reykjavík Shorts&Docs
Senda inn mynd
Dagskrá
Sérstök dagskrá
Silfur refurinn
Sjálfboðaliðar
Hafa samband
Styrktaraðilar
 
Home
News
Reykjavík Short&Docs
Submit A Film
Program
Special Events
The Silver Fox
Volunteer
Contact Us
Sponsors
 
 
 
 
 
  SILFUR REFURINN  
 

Reykjavík Shorts&Docs mun veita verðlaun fyrir bestu íslensku stuttmyndina og bestu íslensku heimildarmyndina á hátíðinni ár hvert. Hátíðin mun heiðra fyrsta landnema Íslands með verðlaunum í hans eftirlíki, Silfurrefnum.

Silfurrefinn í ár hannar listakonan Sara Riel, en Reykjavík Shorts&Docs hyggst fá til liðs við sig nýjan listamann til að hanna verðlaunin á ári hverju. Á sama tíma og hátíðin nýtir þannig krafta ungra og upprennandi listamanna eflir hún listsköpun hér á landinu. Verðlaunin verða afhent til eignar.

Refir bárust til Íslands frá nágrannalöndum okkar þegar ísöldinni var að ljúka fyrir meira en 10.000 árum. Þá var hafís eins og hella allt í kringum landið og hafa refirnir komið eftir ísnum til landsins. Eftir að ísöldinni lauk komust engin spendýr til Íslands þurrum fótum. Þegar landnámsmennirnir komu hingað til lands fyrir meira en 1100 árum var refurinn eina landspendýrið sem þeir fundu. Refurinn er því fyrsti íslenski landneminn. 

Refurinn hefur hlotið ýmiss nöfn í gegnum tíðina. Þessi nöfn eru refur, melrakki, skolli, tófa, tæfa, dýr og lágfóta. Þá eru til nöfnin bítur, dýrbítur og bitvargur um refi sem menn telja drepa fé. Þegar talað er um karldýrið eru notuð nöfnin refur, steggur og högni, en rebbi, rebbali, skaufhali, og langhali eru gælunöfn á karldýri. Um kvendýrið eru notuð nöfnin tófa, tóa, tæfa, tásla, læða og bleyða
og auk þess eru til nöfn eins og rebba, keila, refkeila, tía og mæðra. Tófa sem lögst er í greni til að gjóta er kölluð grenlægja og heitir hún því nafni þar til hún er búin að koma yrðlingunum á legg. Afkvæmið heitir yrðlingur eða tófuhvolpur. Gælunöfn á yrðlingi eru hjubbi, hjöppi og puti. Það liggur því í augum uppi að refurinn hefur ekki síðar sterka nærveru í íslenskri tungu en í sögu landsins.

 

Í dómnefnd verða reynslu miklir kvikmyndagerðarmenn. Tilkynnt verður hverjir sitja í dómnefnd innan skamms.

  Verðlaunin Silfur refurinn eru nú veitt í fyrsta sinn fyrir bestu íslensku stuttmynd og bestu íslensku heimildamynd hátíðarinnar.    
           
       
      Refurinn hennar Söru er töfrasproti og höfuð refs er á toppnum