Miðasala hefst í gamla Austurbæjarbíó kl.14.00 Fimmtudaginn 21. ágúst. Miðaverðið er 600 kr.
Aðgöngupassi á allar myndir hátíðarinar er 4000 kr.
Heimilda- og stuttmyndahátíðin í Reykjavk, REYKJAVIK SHORTS&DOCS verður haldin í sjöunda sinn frá 22. til 29. ágúst 2008.
Að þessu sinni verða allar sýningar í gamla Austurbæjarbíói. Þetta árið er hátíðin haldin í samstarfi við Reykjavík- Menningarnótt sem hefst 23 ágúst í ár. Í tilefni þessa samstarfs verða einnig kvikmyndasýningar í húsnæði Shorts&Docs, í Hljómalind á Laugaveginum og hjá Sævari Karli í Bankastræti.
Markmið Shorts&Docs er að kynna það nýjasta og áhugaverðasta í stutt-
og heimildamyndagerð frá íslandi og öllum heimshornum.
Dagskráin hefst 22. ágúst og verður fjölbreytt og metnaðarfull. Frumsýndar verða nokkrar nýjar íslenskar stutt og-heimildamyndir. Við sýnum einnig framúrskarandi myndir sem annars gefst ekki tækifæri til að sjá hér á landi, svo sem stutt og-heimildamyndir tilnefndar til Nordisk Panaorama, til Óskarsverðlauna, stuttmyndir tilnefndar í Cannes og myndir tilnefndar á Sundance kvikmyndahátiðina. Shorts&Docs er eina kvikmyndahátiðin hér á landi (ásamt hátíðinni á Grundarfirði sem, haldin var í fyrsta sinn í febrúar síðastliðnum) sem sýnir alþjóðlegar stuttmyndir. Áhugi almennings á heimildamyndum hefur aukist mjög undanfarin
ár en auka þarf áhugann á stuttmyndum og því er áherslan þar þetta árið.
Dagskráin verður fjölbreytt og metnaðarfull og munum við bjóða erlendum kvikmyndagerðarmanni til að sýna og fjalla um verk sín, í ár er það Thom Andersen, kvikmyndagerðarmaður, kvikmyndagagnrýnandi og professor.
Laugarvegur 35 verður húsnæði hátíðarinnar frá 15. júlí. Í tveimur gluggum sem snúa að Laugarveginum verða skipulagðar kvikmynda-sýningar sem auglýstar verða frekar.
Mikil vinna hefur verið lögð í undirbúning til að gera hátíðina sem best úr garði.
Guðrún Ragnarsdóttir
Framkvæmdarstjóri
Reykjavík Shorts&Docs
Saga kvikmyndahátíðarinnar Reykjavik Shorts&Docs
Ein meginástæðan fyrir tilurð Reykjavík Shorts and Docs var ákvörðun Filmkontakt Nord að sýna verðlaunamyndir frá Nordisk Panorama hátíðinni á
öllum Norðurlöndunum undir heitinu Mini Panorama. Þá blasti sú staðreynd við
að á Íslandi var enginn skipulagður vettvangur til fyrir þessar sýningar. Stjórn
Félags kvikmyndagerðarmanna var því ljós nauðsyn þess að skapa þennan
vettvang og undirritaður fékk það verkefni að stýra uppbyggingunni. Það var
árið 2001 að
Félag kvikmyndagerðarmanna tók þá tímabæru ákvörðun að stofna Reykjavík
Shorts & Docs. Var á þeim tíma lítið um kvikmyndahátíðir í Reykjavík og býsna
fá tækifæri fyrir Íslendinga til að berja augum góðar heimilda- og stuttmyndir á heimaslóðum.
Hátíðin var kynnt í upphafi með eftirfarandi orðum:
„Þess er vænst að hátíð þessi geti orðið lyftistöng fyrir íslenska kvikmyndagerð.
Á hátíðinni og atburðum tengdum henni geta íslenskir kvikmyndagerðarmenn
sótt þekkingu og upplyftingu auk þess sem almenningi gefst tækifæri til að sjá
úrval góðra heimilda- og stuttmynda“.
Fyrsta hátíðin var haldin árið 2001 stóð aðeins eina helgi í Norræna húsinu.
Það ár var árangur hins unga heimilda- og stuttmyndasjóðs Kvikmyndamiðstöðvar
að koma í ljós. Mikil gróska í þessum greinum kvikmynda hefur m.a. birst í því að RS&D hefur frumsýnt sífellt fleiri slík verk á hátíðinni.
Árið 2002 var hátíðin haldin í Háskólabíói og Regnboganum og 33 myndir
frá 13 löndum sýndar. Kvikmyndamiðstöð gerðist stuðningsaðili RS&D ásamt ráðuneytum menntamála og iðnaðar. Áfram var haldið og við árlegu hátíðirnar bættust ýmis námskeið og fundir á vegum RS&D.
Enn er haldið áfram og það er trú mín að hátíðin nái að dafna og vaxa undir stjórn nýs framkvæmdastjóra.
Hjálmtýr Heiðdal
formaður Félags kvikmyndagerðarmanna |